bobby.is

bobby.is

Share

Garn og prjónavörur

02/08/2026

✨ Tvær peysur – dásamlegt garn ✨

Það er ekki að ástæðulausu að Big Bio Balance og Kelbourne Scout garnið eru í miklu uppáhaldi hjá okkur. ❤️

💚 Skjól peysan er prjónuð úr Big Bio Balance – einstaklega mjúku garni úr blöndu af ull og lífrænni bómull. Fullkomið fyrir þá sem vilja hlýja peysu sem stingur ekki og hentar því mörgum sem eru viðkvæmir fyrir ull.

🤍 Einars peysan er prjónuð úr Kelbourne Scout, fallegu 100% ullargarni sem er létt, hlýtt og gefur peysunni klassískt og tímalaust yfirbragð.

Hvort myndir þú velja – mjúka ullar- og bómullarblöndu eða hreina ull? 🧶

Komdu við hjá okkur í Bobby eða skoðaðu úrvalið á bobby.is – við hjálpum þér að finna garnið í næstu uppáhaldspeysu. 💚

30/07/2026

Einarspeysa frá vinda.is tilbúin kortér í þjóðhátíð, prjónuð úr dásamlega Scout garninu frá Bobbý.is 🩷

https://bobby.is/flokkar/garn/kelbourne-woolens/scout/

Bobbý Hveragerði er garnverslun og netverslun með garn og prjóna 28/07/2026

🌞SUMARFRÍ HJÁ BOBBÝ 🌞

Við systurnar tökum okkur langþráð sumarfrí og verður því lokað í rúma viku eða frá og með 30. júlí - til og með 6. ágúst 💛

En engar áhyggjur - prjónagleðin tekur ekki frí 😉
Það er alltaf opið á bobby.is þar sem þú getur pantað garn, uppskriftir og fylgihluti hvenær sem er.

Við hlökkum til að hitta ykkur aftur endurnærðar og fullar af nýjum hugmyndum eftir fríið.

Eigið yndislegt sumar og takk fyrir allan stuðningin 🌸☀️

Vefverslun 👉https://bobby.is/

Bobbý Hveragerði er garnverslun og netverslun með garn og prjóna Bobbý Hveragerði er garnverslun með garn frá Holst garni í Danmörku, Viking í Noregi og íslenskan Feldlopa úr Landsveitinni ásamt frábæru úrvali af fylgihlutum, uppskriftum og prjónum frá Addi. Einnig erum við með flottar vörur frá GoHandmade bæði vörur fyrir amigurumi og glit ...

22/07/2026



🧶 Uppskrift mánaðarins – Sólrún sumarpeysa ☀️

Ertu að leita að skemmtilegu sumarverkefni? Þá er Sólrún sumarpeysan fullkomið val!

Í samstarfi við Dagskrána á Suðurlandi bjóðum við upp á eina fría uppskrift í hverjum mánuði – og nú er komið að þessari fallegu sumarpeysu.

✨ Garnið sem notað er í peysuna fæst hjá Bobby og við aðstoðum þig með:
🧶 Rétt garn og liti
📏 Garnmagn fyrir þína stærð
💛 Ráð og leiðbeiningar ef þú þarft

Komdu við í versluninni eða skoðaðu úrvalið á bobby.is og gerðu Sólrúnu að þínu næsta prjónaverkefni.

Smelltu á hlekkinn fyrir uppskriftina 👉🏻 https://www.dfs.is/fastir-lidir/hannyrdahornid/sumarpeysan-solrun/

Sumarpeysan Sólrún er fullkomið verkefni í sumarfríinu🧶

Hlekkur í fyrstu athugasemd 👇🏻

Photos from bobby.is's post 09/06/2026

Bobbý Hveragerði – garn - og prjónafylgihlutir!

Kíktu á bobby.is – þar finnur þú allt frá gæðagarni til fallegra prjónafylgihluta sem gleðja alla handavinnuunnendur.
Við tökum upp nýjar vörur í hverri viku þannig að alltaf er eitthvað spennandi að finna – hvort sem þú ert að fylla upp í garnskápinn eða leita að garni í fallega flík 🥰

Erum með garn frá:
- Holst Garn
- Kelbourne Woolnes
- BC garn
- Viking Viking of Norway - Viking Garn
- Glit- og pallíettugarn frá Go Handmade

Fylgihluti og prjóna frá:
- The knitting barber
- Go handmade
- Addi Þýskalandi

Bobbý Hveragerði – þar sem sköpun og gæði mætast 💖

Opið alla virka daga frá 13:30-17:00
Sendum með póstinum um allt land ❣

Hlökkum til að heyra frá ykkur 🥰

03/06/2026

Fléttueyrnaband kom út hjá dfs.is “dagskráin” í síðustu viku, fullkomið fyrir byrjendur og tilvalið fyrir afgangaprjón🩷

Eigum líka til mikið af handlituðu garni 🌸

https://bobby.is

Photos from bobby.is's post 31/05/2026

RJÚFUM MYNSTRIÐ!
Bobbý Hveragerði verður með í þessu frábæra verkefni!

Við veitum 15% afslátt af Kelbourne Scout, Big Bio Balance, Holst Cielo og Eco Highland en þessar fjórar tegundir eru fráærar í Skjól Peysuna.

KÓÐI Í VEFVERSLUN 👉 Skjol

https://bobby.is/

15/05/2026

🔥 50% AFSLÁTTUR af Viking Wool! 🔥

Verð áður 990 kr
Verð nú 495 kr

AFSLÁTTARKÓÐI "wool"

Ertu að leita að mjúku og ódýru garni?
Garn sem heillar með fallegri litahreyfingu og yndislegri mýkt.

🧶 100% Highland Merino ull
🧶 Einstaklega mjúkt og hlýtt
🧶 Fallegir litir með lifandi áferð
🧶 50 gr = 100 m
🧶 Prjónastærð 4,5–5 mm
🧶 Prjónafesta: 18 lykkjur = 10 cm

Fullkomið í peysur, húfur, sjöl og allar hlýlegu flíkurnar 💛

🫧 Þvottaleiðbeiningar:
Ullarprógram eða handþvottur við 30°C.
Hámark 400–600 snúningar í vindingu og leggja flík til þerris.

✨ Núna á EINUNGIS hálfvirði – 50% afsláttur á https://bobby.is/flokkar/garn/viking-wool/ ! ✨

Ekki missa af þessu frábæra tækifæri til að fylla garnskápinn af gæðum á frábæru verði 🧶

03/05/2026

Við systur ætlum að vera á Skyrgerðinni á morgun 4. maí kl. 17, ef ykkur vantar aðstoð með prjón eða annað því tengt, endilega kíkið til okkar og við munum gera okkar besta til að aðstoða ykkur🥰 Öll velkomin!

25/04/2026

Uppskriftin af BJÖRK SUMARBOL sem margir hafa beðið eftir er loksins kominn út 🌼🌼🌼
Uppskrift 👉 https://bobby.is/vorur/bjork-sumarbolur/

🌞 Björkin er prjónuð úr Alba bómullargarni og Party deluxe pallíettugarni EÐA
Bambino 50% bambus og 50% bómull og Party deluxe pallíettugarni.
Prjónastræð 3,5 mm

PEYSAN ER PRJÓNUÐ OFAN FRÁ OG NIÐUR

STÆRÐIR:
XS – S – M – L – XL

YFIRVÍDD:
92 - 98 - 104 – 110 – 120 cm

GARNMAGN:
ALBA: 250 – 250 – 300 – 300 – 350 gr

EÐA BAMBINO: 250 – 250 – 300 – 300 – 350 gr

og PARTY DELUXE PALLÍETTUGARN: 50 – 100 – 100 – 100 – 100 gr

🌼 Skoða úrvalið í Alba https://bobby.is/flokkar/garn/alba-gots/

🌼 Skoða úrvalið í Party deluxe pallíettugarninu https://bobby.is/flokkar/go-handmade/party-deluxe-palliettugarn/

🌼 Skoða úrvalið í Bambino https://bobby.is/flokkar/garn/bambino/

Want your business to be the top-listed Hair Salon in Hveragerdi?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Breiðumörk 13
Hveragerdi

Opening Hours

Monday 13:30 - 17:00
Tuesday 13:30 - 17:00
Wednesday 13:30 - 17:00
Thursday 13:30 - 17:00
Friday 13:30 - 17:00