Hárný Hárgreiðslustofa

Hárný Hárgreiðslustofa

Share

Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Hárný Hárgreiðslustofa, Barber Shop, Nýbýlavegur 28, Kópavogur.

20/07/2020

Þar sem við munum loka hárgreiðslustofunni Hárný 31. júlí nk. bjóðum við nú 35% afslátt af ÖLLUM VÖRUM og einstakar vörur á borði á 500 kr.

Þökkum kærlega viðskiptin síðastliðin 35 ár 🥰

10/07/2020

Kæru viðskiptavinir,
Eftir 35 ára rekstur hárgreiðslustofunnar Hárný við Nýbýlaveg er nú
komið að tímamótum, en þann 1. ágúst næstkomandi verður rekstri
stofunnar hætt.

Ég hef nú staðið vaktina á hárgreiðslustofunni við Nýbýlaveginn í
hartnær fjóra áratugi og hefur það verið frábært og lærdómsríkt
ferðalag. Við höfum verið þeirrar gæfu aðnjótandi að hafa frábært
starfsfólk og trygga kúnna og erum afar þakklát fyrir það.

Ég hef ekki getað sinnt hárgreiðslustarfinu nema að litlu leyti á
undanförnum árum, og hef nú ásamt dætrum mínum ákveðið að
snúa mér alfarið að rekstri heildsölunnar Þórborg. Þórborg hefur
einnig verið til húsa við Nýbýlaveg en þann 1. september
næstkomandi mun heildsalan flytja í húsnæði Hárnýjar.

Á þessum tímamótum vil ég þakka öllum þeim sem hafa aðstoðað
mig við rekstur stofunnar í gegnum árin, öllu því góða fólki sem
hjálpaði mér í keppnum hérlendis og erlendis hér á árum áður og
fjölskyldu minni sem ávallt hefur staðið eins og klettur við bakið á
mér.

Photos from Hárný Hárgreiðslustofa's post 16/06/2020

Við vorum að fá Travel Kit frá IdHair í Colour og Moisture línunni
Sjampó + Næring + Intense hársprey+ 911 næringarsprey
Verð: 5610.- kr

03/05/2020

Kæru viðskiptavinir,
við minnum á að tilmæli sóttvarnarlæknis og almannavarna standa enn í gildi. Þess vegna er mikilvægt að sýna aðgát við snertingar á yfirborðsflötum á biðstofu, mæta ekki of snemma í klippingu og að aðeins einn aðstandandi fylgi börnum sem koma í klippingu.

Einnig minnum við á 2 metra regluna, handþvott og sprittnotkun.
Vinsamlegast endurbókið tíma ef þið eruð í sóttkví, einangrun og/eða með einkenni Covid19.

Hlökkum til að sjá ykkur,
starfsfólk á Hárný

06/04/2020
Photos from Þórborg's post 24/03/2020

Þetta er algjör snilld nauðsynlegt núna í heimadekrinu.

23/03/2020

Lokað verður hjá okkur á Hárný frá og með þriðjudeginum 24. mars. Þetta er gert samkvæmt fyrirmælum sóttvarnarlæknis og til að tryggja heilsu og öryggi okkar allra. Kæru viðskiptavinir farið vel með ykkur og við látum ykkur vita um leið og við getum opna aftur
---
Við ætlum að bjóða upp á fría heimsendingarþjónustu af hárvörum.
Ef þig vantar IdHair, Jungle Fever eða Insight hárvörur þá getum við tekið á móti pöntunum í gegnum facebook skilaboð, [email protected] eða í síma 554-6422
Kær kv. Starfsfólk á Hárný Hárgreiðslustofu
-------------------------------------------
Hárný will be closed from Tuesday 24 March. This is in accordance to instructions from the Icelandic government and Epidemiologist of Iceland and to ensure the health of us all
---
We would like to offer free home delivery services of hair products.
You can order IdHair, Jungle Fever and Insight products through Facebook, [email protected] or by phone: 554-6422
Best regards, Staff of Hárný

31/12/2019

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir árið sem er að líða!
Við opnum aftur 2 janúar 2020 - sjáumst að liðnu ári 🥂❤️

18/12/2019

Jólagreiðslan tilbúin🎄 - Tímapantanir í síma 554-6422

Want your business to be the top-listed Hair Salon in Kópavogur?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Category

Address


Nýbýlavegur 28
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 09:00 - 18:00
Tuesday 09:00 - 18:00
Wednesday 09:00 - 18:00
Thursday 09:00 - 18:00
Friday 09:00 - 18:00